Gengið frá sölu Valhallar í næstu viku

Stefnt er að því að ganga frá sölu Valhallar við Háaleitisbraut í næstu viku. mbl.is/Arnþór Birkisson

Gengið frá sölu Valhallar í næstu viku

Sjálfstæðisflokkurinn og Alva fasteignir hafa komist að samkomulagi um kaup þess síðarnefnda á Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt heimildum mbl.is er stefnt að því að ganga frá sölunni í næstu viku.
Valhöll, sem var auglýst til sölu í nóvember síðastliðnum, er sögufrægt hús sem stendur við Háaleitisbraut 1. Húsið var reist fyrir liðlega hálfri öld og bera margir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins sterkar taugar til hússins, enda reistu flokksmenn sjálfir húsið.
Samkvæmt heimildum mbl.is er enn óráðið hvar Sjálfstæðisflokkurinn mun búa um sig til framtíðar, en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður flokksins hefur áður sagt að henni hugnist í þeim efnum að nýjar höfuðstöðvar verði í miðborginni, í grennd við Alþingishúsið og Ráðhús Reykjavíkur.

Breyta þurfi deiliskipulagi

Viðskiptablaðsins sagði fyrst frá sölunni og vísar til fyrirspurnar sem Alva fasteignir sendu skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar. Í henni felst breyting á notkun byggingarinnar úr skrifstofubyggingu í hótel, með þeim breytingum á notkun hverrar hæðar byggingarinnar sem því fylgir, og á formi byggingarinnar í formi inndreginnar þakhæðar á þaki núverandi byggingar.
Svar skipulagsfulltrúa felur ekki í sér formlega leyfisveitingu, en í því kemur fram að deiliskipulagsbreytingu þurfi til að heimila hótel­starf­semi í byggingunni.
Skipulagsfulltrúi er neikvæður gagnvart hugmynd um hækkun hússins og leggur ríka áherslu á varðveislugildi Valhallar.
Byggingin, sem reist var árið 1975 og hönnuð af Halldóri H. Jóns­syni og Garðari Halldórs­syni, er sögð einstök að því leyti að hún var sér­hönnuð til að hýsa höfuðstöðvar stjórn­mála­flokks og telst tákn­ræn bygging á áberandi horn­lóð.
Alva fasteignir, sem munu að óbreyttu eignast bygginguna, eru í eigu Skorra Rafns Rafnssonar í gegnum félagið Alva Capi­tal.

Hlekkur á frétt Mbl

 

 

is_ISÍslenska