Skorri Rafn Rafnsson er stofnandi og forstjóri ALVA Capital. Hann hefur stofnað og leitt fjölda fyrirtækja, meðal annars Inkasso, Netgiro, Moberg, Heimkaup, Hópkaup og Bland, og gegnt bæði stöðum forstjóra og stjórnarformanns. Skorri býr yfir víðtækri reynslu á sviði fjártækni, hugbúnaðar og netverslunar og er þekktur fyrir að umbreyta sprotafyrirtækjum í farsæl, alþjóðleg félög.
ALVA Capital í dag
Skorri Rafn Rafnsson stofnaði ALVA Capital árið 2012. Félagið hefur byggt upp og fjárfest í fyrirtækjum á ýmsum sviðum, meðal annars í fjártækni og hugbúnaði. Þar má nefna Netgíró, Inkasso og Moberg.
Frá árinu 2020 hafa fasteignir orðið stærri hluti af starfsemi ALVA. Í dag nær starfsemi samstæðunnar meðal annars til fasteignafjárfestinga og þróunar, framkvæmda, hótelrekstrar og fjármálaþjónustu, auk fjárfestinga í öðrum fyrirtækjum.
ALVA leggur áherslu á virkt eignarhald og nýtir reynslu sína af uppbyggingu og rekstri fyrirtækja.
Helstu fyrirtæki
Nokkur fyrirtæki sem Skorri hefur komið að. Inkasso er hluti af ALVA-samstæðunni í dag; hin eru fyrri fjárfestingar.
Inkasso
Fjártæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kröfustýringu.