07.10.2025 13:46:
Íslenska fjárfestinga- og þróunarfyrirtækið Alva Capital hefur undirritað samning við alþjóðlegu hótelkeðjuna IHG Hotels & Resorts um að opna fyrsta Candlewood Suites íbúðahótelið á Norðurlöndum í Reykjavík. Hótelið verður að Rauðarárstíg 27, þar sem utanríkisráðuneytið var áður til húsa.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að í samningnum felist jafnframt áform um að opna 500 gistirými á næstu þremur til fimm árum, undir vörumerkjum Holiday Inn Express og Garner hotels, sem séu í eigu IHG. IHG sé ein stærsta hótelkeðja í heimi með um 7.000 hótel og um eina milljón herbergja.
Breytingar þegar hafnar
Sem áður segir verður hótelið staðsett á Rauðarárstíg 27 þar sem utanríkisráðuneytið var áður til húsa í tilkynningunni segir að framkvæmdir við breytingar séu þegar hafnar. Hótelið muni státa af 53 íbúða- og stúdíóherbergjum með eldhúsaðstöðu en Candlewood Suites þjónusti sér í lagi gesti sem hyggja á lengri gistingu.
„Við erum afar stolt af því að vinna með IHG Hotels & Resorts að því að koma Candlewood Suites til Íslands en vörumerkið býður gestum upp á einstök þægindi og heimilislega dvöl. Þetta er stór áfangi í markmiði okkar að bjóða bæði íslenskum og erlendum gestum upp á fjölbreyttari og sérsniðnari hótelþjónustu en áður hefur þekkst hérlendis. Samstarfið við IHG, eina virtustu hótelkeðju heims, styður við langtímasýn okkar í fasteigna- og ferðaþjónustu og mun hafa jákvæð áhrif á íslenskan markað,“ er haft eftir Skorra Rafni Rafnssyni, forstjóra Alva Capital.
Í frétt Viðskiptablaðsins síðan í mars segir að Alva Capital hafi keypt fasteignina að Rauðarárstíg 27 af Eik á 744 milljónir króna.
Þrettán hótel þegar á Norðurlöndunum
Í tilkynningunni segir að Candlewood Suites Reykjavík undirstriki áframhaldandi vöxt IHG á Norðurlöndum en það bætist nú í hóp þrettán hótela sem þegar eru starfandi eða í byggingu á Norðurlöndum, þar á meðal voco Stockholm – Kista,Crowne Plaza Copenhagen Towers og Hotel Indigo Helsinki.
„Við hlökkum til að kynna Candlewood Suites vörumerkið á Íslandi sem er spennandi og vaxandi markaður fyrir IHG. Við erum sérstaklega stolt af hinu skilvirka samstarfi milli IHG og Alva, en undirritun var vart lokið þegar framkvæmdir við breytingar á húsnæðinu voru hafnar og stefnt verður að opnun innan skamms tíma. Alva hefur þegar getið sér góðan orðstýr á Íslandi og samningurinn býður upp á góð tækifæri fyrir vöxt beggja fyrirtækja víða um land, ég er mjög spenntur að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér,“ er haft eftir Mario Maxeiner, framkvæmdastjóra IHG Hotels & Resorts fyrir Norður-Evrópu.
Hlekkur á frétt visir.is

