Við fjárfestum í fasteignum og fyrirtækjum sem við trúum á
Við leggjum áherslu á þróun nýrra tækifæra með langtíma verðmætasköpun að leiðarljósi.
Við fjárfestum í fasteignum
ALVA Capital fasteignaþróun leggur áherslu á þróun íbúðar- og atvinnuhúsnæðis fyrir bæði skammtíma- og langtímaleigu. Við eigum fjölbreytt fasteignaþróunarverkefni bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Við fjárfestum í fyrirtækjum
ALVA Capital fjárfestir í fyrirtækjum annað hvort með því að leggja þeim til vaxtarfjármagn eða með nýsköpun og fjárfestingum í tæknifyrirtækjum. Við veitum fyrirtækjum okkar rekstrarstuðning og hjálpum þeim að vaxa til þess að verða markaðsleiðandi fyrirtæki.
Fasteignaþróun
Alva Capital hóf að einbeita sér að fasteignaþróun og fjárfestingum í fasteignum árið 2020. Fasteignasafnið sem félagið hefur byggt upp er einstakt á Íslandi þar sem mikil áhersla er lögð á vel staðsettar íbúðir og hótelherbergi.
Í dag samanstendur eignasafnið af yfir 200 leigueiningum. Fyrirtækið sérhæfir sig í skammtímaleigu til ferðamanna en nýtir einnig hluta eignasafnsins í langtímaleigu til einstaklinga.
Eignasafn
ALVA Fasteignir, ALVA Hotels, ALVA Framkvæmdir og Inkasso eru hluti af ALVA Capital-samstæðunni.
ALVA Fasteignir
2020 – Núna
ALVA Fasteignir á og þróar fasteignir samstæðunnar á Íslandi. Í eignasafninu eru 19 fasteignir, alls 10.583 m², með 190 einingar í rekstri og 90+ í þróun.
ALVA Hotels
2021 - Núna
ALVA Hotels rekur hótel og hótelíbúðir samstæðunnar í Reykjavík, þar á meðal Candlewood Suites Reykjavik, sem er rekið samkvæmt sérleyfissamningi við IHG Hotels & Resorts.
ALVA Framkvæmdir
2022 - Núna
ALVA Framkvæmdir sér um byggingar- og þróunarverkefni, einkum fyrir fasteignir samstæðunnar en einnig fyrir aðra verkkaupa.
Inkasso
2017 - Núna
Inkasso er fjártæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kröfustýringu og innheimtu á Íslandi.
ALVA Homes
2021 - Núna
Safn fasteignafjárfestinga í Bandaríkjunum.
Fyrri fjárfestingar
Sumar af okkar fyrri fjárfestingum.
Moberg
2011–2021, seld til Kviku banka
Moberg er hugbúnaðarfyrirtæki með höfuðstöðvar í Zagreb Króatíu. Í dag starfa yfir 50 hugbúnaðarsérfræðingar í fyrirtækinu.
Netgíró
2012-2021, seld til Kviku banka
Netgíró er leiðandi greiðslumiðlun á sínu sviði. Netgíró var stofnað með þá sýn að skapa öruggari og einfaldari kaup í verslunum og á netinu.
Two Birds
2021, selt
Leiðandi nýsköpunarfyrirtæki á sviði fjármálatækni. Fyrirtækið þróa nýjar og notendavænar viðskiptalausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki á fasteigna- og fjármálamarkaði.
Aktiva
2019 - sameinað Netgíró
Aktiva var lánatorg sem tengdi saman lántakendur og fjárfesta til forða notendum frá óhóflegum kostnaði hefðbundinnar bankastarfsemi og minnka þannig kostnað til neytenda.
Heimkaup
2020 - seld til fjárfesta
Heimkaup er fyrirtæki á smásölumarkaði og hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur í hinum ýmsu störfum. Heimkaup hefur verið leiðandi í vefsölu á Íslandi og eins í rekstri þægindaverslana en Heimkaup rekur Extra, 10-11 og þrjár verslanir við Orkuna.
Mynta
2017 - sameinuð Inkasso
Mynta var fjártækni fyrirtæki sem sérhæfði sig innheimtu og kröfustýringu.
Hópkaup
2019 - seld til fjárfesta
Hópkaup.is er stærsta afsláttar síða á Íslandi og sú fyrsta á markaðnum. Viðskiptavinir hópkaup.is eru yfir 80.000 talsins, það er tæplega 30% af íslensku þjóðinni. Markmið fyrirtækisins er að veita bestu þjónustuna með 100% öryggi.
Bland
2017 - seld til fjárfesta
Bland er stærsti netmarkaðurinn á Íslandi með yfir 200 þúsund notendur. Á Bland getur hver sem er keypt og selt hvað sem er, þar er einnig virkt umræðuborð. Blað hefur verið eins stærsta vefgátt á Íslandi frá árinu 2000.
Gamestöðin
Selt 2014
Geimstöðin er sérverslun tölvuleikjaspilarans! Þeir kaupa gömlu leikina þína og þú notar peningana til að lækka kostnað við nýja tölvuleiki! Geimstöðin var stofnuð 21. júní 2008 og var fyrsta verslunin staðsett í Skeifunni.
Skífan
Selt 2014
Skífan var ein vinsælasta og frægasta plötuútgáfa og plötuverslun Íslands. Þar voru seldar tónlistarplötur af öllum gerðum sem og DVD-diskar og tölvuleikir. Fyrirtækið var stofnað árið 1975 og var orðið 40 ára þegar það lokaði verslunum sínum og sameinaðist rekstri Heimkaupa.
Mói Media
Selt 2016
Mói var einn stærsti frétta- og afþreyingarmiðill Ísland og átti meðal annars heimasíðurnar: Hun.is, 433.is, Sport.is, Bland.is, Isinfront.is, FlickMyLife.is og Nudemagazine.is. Markmið Móa var að tryggja notendum aðgang að vinsælasta og besta afþreyingar efninu á internetinu hverju sinni.
Fréttir
Hér fyrir neðan er hægt að skoða fréttir af okkur í gegnum tíðina af hinum ýmsu fréttamiðlum. Hlekkir á upphaflegu fréttina er fyrir neðan hverja frétt.
- 2025-11-07
ALVA Capital og IHG gera tímamótasamning: Opna fyrsta IHG-hótelið á Íslandi og þróa 500 herbergi á næstu árum
- 2026-10-27
IHG og ALVA Capital tilkynna um Holiday Inn Express Reykjavík – Valhöll
- 2026-02-13
Valhöll seld en óvíst með framhaldið
- 2025-11-07
ALVA Capital og IHG gera tímamótasamning: Opna fyrsta IHG-hótelið á Íslandi og þróa 500 herbergi á næstu árum
- 2025-03-30
820 milljóna kaup í miðbænum
Um okkur
Fjárfestingafélagið ALVA Capital var stofnað árið 2012 og eru megin áherslur félagsins fjárfestingar í þróun og rekstri fasteigna. Við ætlum okkur stóra hluti í fasteignaþróun á næstu misserum en Alva Capital er leiðandi fjárfestingafélag í tækni og fjártækni. Við höfum stofnað fjölda leiðandi fyrirtækja og erum með starfsemi í nokkrum löndum.
Við hófum fjárfestingarstefnu okkar í fasteignum árið 2020 þar sem við notum gagnastýrða nálgun í fjárfestingum og þróun skammtíma- og langtímaleigueininga.
Stjórnendur

Steinunn Ragna Hjartar
Fjármála- og rekstrarstjóri
Steinunn Ragna Hjartar er fjármála- og rekstrarstjóri ALVA Capital. Hún hefur víðtæka reynslu af fjármálastjórnun og rekstri fyrirtækja og hefur meðal annars gegnt stöðu forstjóra Senu og fjármálastjóra Wise. Steinunn býr yfir sterkum bakgrunni á sviði fjármálastefnu, stjórnarhátta og rekstrar og ber ábyrgð á fjármálastjórn og rekstri samstæðunnar.

Skorri Rafn Rafnsson
Forstjóri
Skorri Rafn Rafnsson er stofnandi og forstjóri ALVA Capital. Hann hefur stofnað og leitt fjölda fyrirtækja, meðal annars Inkasso, Netgiro, Moberg, Heimkaup, Hópkaup og Bland, og gegnt bæði stöðum forstjóra og stjórnarformanns. Skorri býr yfir víðtækri reynslu á sviði fjártækni, hugbúnaðar og netverslunar og er þekktur fyrir að umbreyta sprotafyrirtækjum í farsæl, alþjóðleg félög.
Stjórn

Guðmundur Magnason
Stjórnarmaður
Guðmundur Magnason situr í stjórn ALVA Capital og er framkvæmdastjóri Inkasso. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri fyrirtækja og var meðal annars framkvæmdastjóri Heimkaupa á árunum 2014–2020 og Latabæjar frá 2008 þar til fyrirtækið var selt til Turner Broadcasting árið 2014. Guðmundur býr yfir umfangsmikilli reynslu á sviði viðskiptaþróunar, stefnumótunar og rekstrar.

Borghildur Ágústsdóttir
Stjórnarmaður
Borghildur Ágústsdóttir situr í stjórn ALVA Capital og er fjármála- og rekstrarstjóri Inkasso. Hún hefur víðtæka reynslu af fjármálastjórnun og rekstri fyrirtækja og starfaði áður sem fjármálastjóri Icelandair Hotels í 12 ár. Borghildur býr yfir sterkum bakgrunni á sviði fjármálastjórnunar, stefnumótunar og rekstrar.
Samfélagsleg ábyrgð
ALVA Capital tekur samfélagslega ábyrgð alvarlega og hefur lengi stutt við mannúðarstarf. Við höfum meðal annars stutt við börn sem búa við fátækt.
ALVA Capital hefur verið stoltur styrktaraðili ABC barnahjálpar síðan árið 2018. En ABC barnahjálp styrkir börn í Búrkína Fasó til skólagöngu með kennslu, bókum, ritföngum skólabúningum, máltíðum og heilbrigðisþjónustu.
ALVA Capital mun halda áfram að styðja ABC barnahjálp með stolti.





